Innanhússarkitektinn Hanna Stína segist flippkisa í bland við glam þegar kemur að innanhússhönnun. Henni finnst skemmtilegast að blanda saman ólíkum stílum og það sé aldrei bara eitthvað eitt rétt. Hanna Stína mætti í hönnunarspjall í verslunina Módern.
Hanna Stína býr yfir margra ára reynslu og kann að lesa í viðskiptavini sína og koma til móts við þeirra þarfir. Hún segir hennar eigin stíl samt alltaf skína í gegn. Það fyrsta sem hún hugsi inn í stofurými sé „Vá faktor“. Það geti verið glæsileg hilla með lýsingu, mikilfengleg ljósakróna eða risastór vasi. Það sé gaman að taka sénsa í stærðum og ýktum hlutföllum þegar það er hægt.