Innanhússarkitektinn Hanna Stína hannaði umgjörð utan um fjögurra manna fjölskyldu í nýju húsi í Garðabæ. Húsið sjálft var hannað af arkitektinum Davíð Pitt og er á skjólgóðum stað. Dökkur viður, brass og glamúr mætast á sjarmerandi hátt ásamt veggfóðri og lituðum speglum.
Húsið er 238 fm að stærð og var byggt 2021 af ungu pari sem á tvö lítil börn. Húsfrúin segir að þau séu mjög hvatvís. Þau hafi keypt lóð og byggt hús án þess að velta sér mikið upp úr því. Þegar hún er spurð út í stílinn á húsinu segist hún hafa fengið mikinn innblástur þegar hún kom inn í þakíbúð í Garðabænum og langað í svipað heimili. Svo var Hanna Stína innanhússarkitekt kölluð til.