Hanna Stína | Interiors

smartland.is

Hanna Stína hannaði 160 milljóna hús í Kópavogi

Við Austurkór í Kópavogi er einstaklega fallegt parhús til sölu. Húsið er á einni og hálfri hæð með mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum. Hanna Stína innanhúsarkitekt hannaði húsið að innan. Sunna Hrönn Sigmarsdóttir er eigandi hússins.

Innréttingar hússins eru hannaðar af Hönnu Stínu og sérsmíðaðar af Heggi. Quartzite náttúrusteinn er á borðplötum sem þykir með eindæmum praktískur og fallegur. 

Mjög vel skipulagt

Í húsinu eru þrjú rúmgóð svefnherbergi og tvö baðherbergi. Frá hjónasvítunni er gengið inn í fataherbergi og inn á baðherbergi. Það er einnig rúmgott sjónvarpsherbergi og sér þvottahús. Húsið er vel skipulagt.